Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   fös 17. apríl 2026 23:10
Haraldur Örn Haraldsson
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan vann 3-2 gegn FH í kvöld og er því með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Bestu deild karla. Birnir Snær Ingason skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir liðið í leiknum.


Lestu um leikinn: Stjarnan 3 -  2 FH

„Þetta var ógeðslega góður sigur, bara að koma þessu yfir línuna. Mér fannst þetta tæpt, við vorum kæruleysir í smá á tímabili. Í bæði skiptin sem við fáum mörkin á okkur þá kom svona kafli þar sem við vorum smá kærulausir. Þeir nýta það vel, þetta voru eiginlega einu stundirnar sem við höfðum ekki stjórnina. Það var geðveikt að ná markinu í lokin," sagði Birnir.

Birnir skoraði fyrsta mark leiksins, og opnaði því markareikning sinn með Stjörnunni.

„Það er alltaf ljúft, það er alltaf helvíti gott. Mikill léttir, líka að það komi snemma. Það gefur manni mikla orku, snemma í leiknum og snemma á tímabilinu. Þetta kom á mjög góðum punkti," sagði Birnir.

Jökull Elísabetarson þjálfari liðsins talaði um fyrir mót að hann hafi verið ósáttur með spilamennsku liðsins í loks síðasta tímabils. Stjarnan spilaði fanta vel í kvöld og vel hægt að sjá að það eru breytingar frá spilamennskunni þá.

„Mér finnst að þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur. Þá erum við bara ógeðslega góðir, við vorum 'on it' í svona 80 mínútur í dag, það var kannski 10-15 mínútna kafli sem við vorum það ekki og þeir nýta það. Það er dýrt að við náum ekki að halda markinu hreinu þessa kafla sem við erum ekki 'on it'. Þegar við náum takti, þá erum við bara ógeðslega góðir," sagði Birnir.

Birnir hefur lært fatahönnun og hefur mikinn áhuga á tísku. Stjarnan er í nýjum treyjum þetta tímabilið og því var hann spurður hvernig honum findist þær.

„Þær eru fínar, það er hægt að vinna aðeins meira með þetta. Við þurfum að ræsa eitthvað alvöru stöff  í gang fyrir næsta tímabil," sagði Birnir.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner