Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 17:09
Kári Snorrason
Byrjunarlið Breiðabliks og ÍA: Blikar aftur í fjögurra manna varnarlínu
Viktor Karl Einarsson.
Viktor Karl Einarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ómar Björn Stefánsson.
Ómar Björn Stefánsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik og ÍA eigast við á Kópavogsvelli í 2. umferð Bestu deildarinnar sem fer öll fram í dag. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og búið er að opinbera byrjunarlið leiksins.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  0 ÍA

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, gerir eina breytingu á liði sínu frá 1-1 jafntefli gegn Víkingi fyrir viku síðan. Þá stilltu Blikar upp í þriggja manna hafsentalínu en nú stilla þeir upp í fjögurra manna vörn með Ásgeir Helga og Ívar Örn í hafsentum.

Viktor Örn Margeirsson tekur sér sæti á bekknum og í hans stað kemur Viktor Karl Einarsson.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir sömuleiðis eina breytingu á byrjunarliði sínu frá 3-3 jafntefli gegn Fram í fyrstu umferð.

Inn í liðið kemur Ómar Björn Stefánsson á kostnað Gísla Laxdal Unnarssonar sem tekur sér sæti á bekknum.

Þeir Rúnar Már Sigurjónsson og Steinar Þorsteinsson eru báðir utan hóps vegna smávægilegra meiðsla. Þeir voru jafnframt utan hóps gegn Fram síðastliðinn sunnudag.

Byrjunarlið Breiðablik:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
5. Ívar Örn Árnason
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson
9. Óli Valur Ómarsson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
17. Valgeir Valgeirsson
18. Davíð Ingvarsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
30. Andri Rafn Yeoman

Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
7. Haukur Andri Haraldsson
8. Guðmundur Þórarinsson
9. Viktor Jónsson (f)
11. Gísli Eyjólfsson
21. Böðvar Böðvarsson
22. Ómar Björn Stefánsson
25. Markús Páll Ellertsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason
Slapp
banner
banner