Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   fös 17. apríl 2026 23:38
Haraldur Örn Haraldsson
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH tapaði 3-2 fyrir Stjörnunni í kvöld í annari umferð Bestu deildar karla. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH var svekktur með úrslitin.


Lestu um leikinn: Stjarnan 3 -  2 FH

„Ég er nokkuð svekktur með að hafa ekki náð jafnteflinu. Fyrri hálfleikur var ekkert sérstakur hjá okkur, leikskipulagið gekk ekki alveg upp eins og við hefðum vonast eftir. Við náum ekki að skapa okkur nógu mikið af tækifærum. Við vissu að þetta yrði erfiður leikur fyrir okkur en ég var að mörgu leiti ánægður með hvernig við komum inn í seinni hálfleikinn. Við lokuðum á þessi svæði sem Stjarnan var að komast í milli varnar og miðju, þeir gerðu það bara vel að tengja vel við framherja sinn og komast í sóknarstöðu þannig. Við ákváðum aðeins að aðlagast því og loka á þau svæði. Við unnum boltann oft á tíðum á miðjunni og náðum nokkrum hættulegum skyndisóknum á þá. Við komumst yfir í leiknum, en ég er svekktur með það hvernig við fáum á okkur jöfnunarmarkið og þriðja markið," sagði Jóhannes.

Jóhannes tók við sem þjálfari FH fyrir þetta tímabil, og þetta var aðeins hans þriðji mótsleikur með liðið. Hversu langt er þá liðið komið í að ver hans lið?

„Mér finnst vera hörku andi í þessu liði, og það eru gæði í þessu liði líka. Við erum náttúrulega að reyna að vera orkumikið lið, og það heppnast af einhverju leiti það sem við gerum í Vestmannaeyjum, fengum stig þar. Kannski hefðum við átt skilið miðað við tölfræði og annað, mér fannst við gera nóg í seinni hálfleik til að verðskulda sigur þar. Að mörgu leiti mjög ánægður með seinni hálfleikinn þar, seinni hálfleikurinn í kvöld bara flottur. Þannig það er andi og vilji í þessum mönnum, þannig ég er fyrst og fremst bara ánægður með það. Við vitum að við getum skorað mörk þannig við höldum bara áfram að bæta okkur í sem við ætlum að bæta okkur í. Við þurfum að fara inn í þessa hörku leiki eins og á móti Stjörnunni með það hugarfar að sækja sigur. Við erum ekki að fara inn í neina leiki nema með neitt annað markmið en að sækja stigin sem eru í boði. Jafntefli í dag, og sigur í Vestmannaeyjum hefði verið gott, en við erum með eitt stig. Margt jákvætt í okkar leik að sama skapi," sagði Jóhannes.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner