Enski þjálfarinn Frank Lampard stýrði Coventry City upp í efstu deild í fyrsta sinn í 25 ár er liðið gerði 1-1 jafntefli við Blackburn Rovers í kvöld.
Lampard tók við Coventry á miðju síðasta tímabili eftir að hafa áður stýrt Chelsea, Derby og Everton.
Hann kom Coventry í umspil um sæti í úrvalsdeildina á fyrsta tímabili sínu, en það datt út í undanúrslitum. Síðasta sumar smíðaði hann síðan ógnarsterkt lið sem fór á rosalegt skrið í deildinni.
Það kom vissulega kafli á tímabilinu þar sem liðið missti niður tíu stiga forystu en það kom sér aftur á sigurbraut og leit ekki aftur um öxl.
Úrvalsdeildarsætið var síðan tryggt með stiginu í kvöld og var Lampard í alsælu þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir leik.
„Við vorum kannski ekki upp á okkar besta ef við tölum um flæði, en gæðin í þessum bolta og krafturinn í skallanum.. Við þurftum að halda þetta út, en vissum ekki hvort við ættum að sækja eða ekki.“
„Þetta er nákvæmlega það sem þetta snýst um. Það er ekki auðvelt að koma hingað og ná í stig á þessum tímapunkti tímabilsins, en að ná þessu eftir 25 ára fjarveru í úrvalsdeildinni. Bara vá!“
„Þetta félag ætlar sér hluti. Þegar ég var að alast upp var liðið í úrvalsdeildinni, en ég áttaði mig ekki á því hversu alvarlegt þetta félag er. Það að komast beint upp og ekki vera eitt af fallhlífar-liðunum (þeim sem féllu úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð) með þrjá leiki eftir er algerlega einstakt. Stórkostlegt afrek hjá þessum strákum.“
„Ég er stoltur af sjálfum mér og þjálfarateyminu. Við stigum svolítið inn í óvissuna fyrir fimmtán mánuðum þegar við mættum hingað á einhverjum fólksbíl. Við erum orðnir ástfangnir og þetta er bara með stærstu afrekum ferilsins. Ég er ótrúlega stoltur að vera stjóri Coventry,“ sagði Lampard.


