Fotbolti.net
17.04.26 - 21:16
Kári Snorrason

Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór

Auglýsing
Johannes Vall fer hressilega í Valgeir.

Johannes Vall fer hressilega í Valgeir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik sótti sinn fyrsta deildarsigur á tímabilinu er liðið lagði ÍA að velli, 1-0, fyrr í kvöld. Valgeir Valgeirsson, leikmaður Breiðabliks, ræddi við Fótbolta.net að leik loknum.
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
TENGT EFNI

Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“

„Þetta voru mjög sæt þrjú stig. Mjög erfiður leikur, ógeðslega gaman að sækja fyrsta sigurinn á tímabilinu. Við þurftum að hafa mikið fyrir þessu, sérstaklega undir lokin. Þeir voru farnir að setja mikla pressu á okkur, við héldum ekki vel í boltann og þreytan var farin að segja til sín. Við börðumst hvor fyrir annan og hlupum hvor fyrir annan, geggjað að þetta hafi endað svona,“ segir

Það ætlaði allt um koll að keyra undir lok fyrri hálfleiks. Valgeir Valgeirsson og Lárus Orri létu einhver orð falla við hvorn annan og samkvæmt sjónarvotti sakaði Valgeir Lárus Orra um að kalla sig tussu. Við það skarst Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, inn í leikinn og lét Lárus heyra það.

Hvað gerðist?
„Ég ætla ekkert að fara dýpra í það. Það flökkuðu einhver orð á milli okkar og það fór eins og það fór. Ég ætla ekkert að fara neitt meira út í þetta.“

Ertu ósáttur við Lárus?
„Nei, þetta var í hita leiksins. Sem gerist í fótbolta, hitinn kemur. Þá fara menn að rífast, svona er þetta bara. Ég hef sjálfur lent í þessu áður, þetta er hluti af fótbolta,“ sagði Valgeir.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Lárus spjaldaður eftir orðaskiptin við Valgeir.

Lárus spjaldaður eftir orðaskiptin við Valgeir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.