17.05.17 - 15:08
Magnús Már Einarsson
Dirk Kuyt leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Hættur.

Mynd: Getty Images

Hættur.

Mynd: Getty Images
Hollenski kant og sóknarmaðurinn Dirk Kuyt hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hinn 36 ára gamli Kuyt varð hollenskur meistari með Feyenoord um síðustu helgi.
Kuyt tryggði Feyenoord titilinn þegar hann skoraði þrennu gegn Heracles í lokaumferðinni. Það reyndist síðasti leikur hans á ferlinum.
Kuyt lék með Liverpool frá 2006 til 2012 en þar skoraði hann 51 mark í 206 deildarleikjum.
Á ferli sínum lék hann einnig með Utrecht í Hollandi sem og Fenerbahce í Tyrklandi.

Þá skoraði Kuyt 24 mörk í 104 landsleikjum með Hollendingum á ferli sínum.

Kuyt í landsleik á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Kuyt fagnar marki með Liverpool.

Mynd: Getty Images