Fotbolti.net
17.05.17 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Mazzarri hættir með Watford (Staðfest)

Mazzarri getur sett upp sólgleraugun og tekið sér langt sumarfrí.

Mazzarri getur sett upp sólgleraugun og tekið sér langt sumarfrí.

Canon

Mynd: Getty Images

Walter Mazzarri verður ekki áfram stjóri Watford á næsta tímabili en félagið staðfesti þetta í dag.

Hinn 55 ára gamli Mazzarri tók við Watford í fyrrasumar eftir að hafa meðal annars stýrt Inter, Napoli og Sampdoria í heimalandi sínu.
„Eftir að stjórnin ræddi framtíðarmarkmið félagsins við Walter Mazzarri þá var ákveðið að hann hætti sem stjóri eftir lokaleik tímabilsins 2016/2017,\" sagði í yfirlýsingu frá Watford.

Mazzarri stýrir Watford í síðasta skipti í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag en þá mætir liðið Manchester City.

Watford er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en liðið hefur ekki verið nálægt fallbaráttunni á þessu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.