17.05.17 - 07:30
Hafliði Breiðfjörð
Sonja Björk Jóhannsdóttir í Fjarðab/Hött/Leikni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Sonja Björk Jóhannsdóttir er gengin til liðs við sameiginlegt lið Fjarðabyggðar, Hattar og Leiknis sem leikur í 2. deild kvenna.
Sonja sem er 31 árs sóknarmaður þekkir vel til fyrir austan því hún lék bæði með Fjarðabyggð og Hetti áður en hún hélt suður og spilaði með KR.
Sonja hefur frá árinu 2000 spilað samtals 162 leiki og skorað í þeim 69 mörk.
Hún lék síðast með KR í Pepsi deildinni árið 2015 samtals 15 leiki en gekk eftir það tímabil í raðir Fylkis. Hún hætti svo þar áður en að tímabilinu kom.