Fotbolti.net
17.05.18 - 17:25
Magnús Már Einarsson

Guardiola framlengir við Man City (Staðfest)

Sáttur hjá City.

Sáttur hjá City.

Canon

Mynd: Getty Images

Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur skrifað undir nýjan samning við Englandsmeistarana.

Nýi samningurinn gildir til ársins 2021.

Hinn 47 ára gamli Guardiola kláraði bæði samninga sína hjá Barcelona og Bayen Munchen og ef hann gerir slíkt hið sama hjá City þá verður hann að minnsta kosti í fimm ár hjá félaginu.

<i>„Ég er svo ánægður og spenntur. Það er ánægja að vinna hér,\"</I> sagði Guardiola eftir undirskrift.
Manchester City setti stigamet í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili en liðið endaði með 100 stig. City vann einnig enska deildabikarinn á tímabilinu.

We’ve got 👏👏 Guardiola! #mancity pic.twitter.com/JIpTiZB5rc

— Manchester City (@ManCity) May 17, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.