Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 17. maí 2022 21:36
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Nottingham í úrslit - Samba varði þrjár vítaspyrnur
Mynd: Getty Images

Nottingham Forest 1 - 2 Sheffield Utd (2-2 samanlagt)
1-0 Brennan Johnson ('19)
1-1 Morgan Gibbs-White ('47)
1-2 John Fleck ('75)
3-1 í vítaspyrnukeppni


Nottingham Forest er komið í úrslitaleik umspilsins um síðasta lausa sætið í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Nottingham mætti Sheffield United í undanúrslitum og var í góðri stöðu fyrir heimaleikinn sem fór fram í kvöld eftir sigur í útileiknum um helgina.

Það stefndi allt í veislu hjá heimamönnum þegar Brennan Johnson kom þeim yfir á nítjándu mínútu, nokkuð gegn gangi leiksins. Sheffield var betra liðið í fyrri hálfleik en tókst ekki að jafna og staðan 1-0 í hálfleik, eða 2-0 í heildina.

Lærisveinar Paul Heckingbottom voru ekki á því að gefast upp og minnkaði Morgan Gibbs-White muninn í upphafi síðari hálfleiks. Leikurinn varð afar jafn í kjölfarið þar sem liðin skiptust á að sækja en John Fleck náði að gera jöfnunarmark Sheffield á 75. mínútu og knýja leikinn í framlengingu.

Bæði lið komust nálægt því að stela sigrinum í framlengingunni en inn vildi boltinn ekki og því þurfti að útkljá viðureignina með vítaspyrnukeppni.

Sheffield klúðraði fyrstu tveimur spyrnunum sínum og var gríðarleg dramatík þegar næstsíðasti skotmaður Nottingham brenndi af. Það gerði þó lítið til því Gibbs-White var næstur á punktinn og lét Brice Samba verja frá sér. 

Samba er án nokkurs vafa hetja Nottingham í kvöld þar sem hann varði þrjár af fjórum vítaspyrnum Sheffield eftir að hafa bjargað frábærlega í tvígang frá Iliman Ndiaye.

Það er því ljóst að annað hvort Nottingham Forest eða Huddersfield Town taka þátt í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Það eru 23 ár síðan Nottingham var síðast í úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner