17.06.17 - 10:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Derby kaupir Wisdom frá Liverpool (Staðfest)

Wisdom er farinn frá Liverpool.

Mynd: Getty Images

Wisdom er farinn frá Liverpool.

Mynd: Getty Images
Derby hefur gengið frá kaupum á Andre Wisdom frá Liverpool. Leikmaðurinn á eftir að gangast undir læknisskoðun hjá Derby, en annars er allt klappað og klárt.
Ekki er búið að gefa upp hversu langan samning hann skrifar undir.
Ekki er búið að gefa upp hversu langan samning hann skrifar undir.
Wisdom, sem er varnarmaður, er búinn að ná samkomulagi við Derby og mun gangast undir læknisskoðun seinna í þessum mánuði, þegar hann kemur heim úr sumarfríi.
Hinn 24 ára gamli Wisdom var á láni hjá Derby tímabilið 2013/2014 en síðan þá hefur hann einnig farið til West Briom, Norwich og til austurríska liðsins Red Bull Salzburg á láni.
Wisdom varð tvöfaldur meistari með Salzburg á nýliðnu tímabili, en síðasti mótsleikur hans með aðalliði Liverpool var í september 2013.
Hann er annar leikmaðurinn sem Derby fær til sín í sumar, en hinn var Curtis Davies, sem einnig er varnarmaður.

#LFC have reached an agreement with Derby County for the permanent transfer of Andre Wisdom: https://t.co/PPIzvKfnRN pic.twitter.com/J3V8oaJn72
— Liverpool FC (@LFC) June 16, 2017