Fotbolti.net
17.06.17 - 18:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Ítalía: Parma upp í Seríu B (Staðfest)

Parma komst upp í Seríu B í dag.

Parma komst upp í Seríu B í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Parma 2 - 0 Alessandria</b>
1-0 Manuel Scavone (\'11)
2-0 Manuel Nocciolini (\'66)
Parma, gamla stórveldið í ítalska boltanum, vann sér í dag sæti í Seríu B, næst efstu deild Ítalíu.

Fyrir tveimur árum varð Parma gjaldþrota og við það var félagið sent niður í D-deildina. Á fyrsta ári í D-deildinni setti Parma stigamet og félagið er nú komið upp í Seríu B.

Liðið mætti Alessandria í úrslitaleik um sæti í Seríu B í dag og þar voru það nafnarnir Manuel Scavone og Manuel Nocciolini sem sáu um að skora mörkin í 2-0 sigri.

Parma er eins og áður segir gamalt stórveldi, en árið 1992 varð Parma bikarmeistari í fyrsta sinn. Næstu tíu ár á eftir var liðið stórveldi í Evrópu þó það hafi ekki náð að enda ofar en í öðru sæti Seríu A. Nú liggur leiðin bara upp á við.

Ítalski boltinn - Parma (Podcast)

Seria B. Here we go!!! #forzaparma #parmacalcio1913 #parmaalessandria pic.twitter.com/ww1qHCps3B

— Guðjón Guðmundsson (@gudjongudmundss) June 17, 2017


Parma er í þann mund að komast í Serie-B úr því hyldýpi sem Lega Pro er. Með Hernan Crespo í stúkunni er liðið að vinna Alessandria í finals

— Björn Már Ólafsson (@bjornmaro) June 17, 2017


ITS ALL OVER!!! SERIE B HERE WE COME!!!!!!!!!! ➕💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙💛💙 #ParmaAlessandria

— Solo Parma (@Solo_Parma) June 17, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.