Fotbolti.net
17.06.21 - 20:23
Victor Pálsson
Jói útherji

Koeman staðfestir að Memphis sé á leiðinni

Koeman staðfestir að Memphis sé á leiðinni
Canon

Mynd: Getty Images

Memphis Depay er á leiðinni til Barcelona og mun skrifa undir í þessum sumarglugga.
Þetta hefur Ronald Koeman, stjóri Barcelona, staðfest en Memphis hefur verið orðaður við spænska félagið á öllu þessu ári.

Hollendingurinn hefur spilað virkilega vel með Lyon í Frakklandi en er nú að kveðja liðsfélaga sína þar.

Memphis er staddur á EM með Hollandi þessa stundina þar sem liðið vann fyrsta leik sinn 3-2 gegn Úkraínu.

Hann skoraði svo í kvöld í leik gegn Austurríki.

„Memphis ræddi aðeins um þetta í dag og ég get staðfest það. Þetta er nánast klárt," sagði Koeman.

„Það er ekki búið að skrifa undir ennþá. Við vildum fá hann í janúar en ef þetta gerist núna er það frábært."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.