Fotbolti.net
24.06.26 - 11:36
Elvar Geir Magnússon

Hvaða lið í þriðja sæti komast áfram?

Svíþjóð er með bestan árangur þeirra liða sem nú eru í þriðja sæti.

Svíþjóð er með bestan árangur þeirra liða sem nú eru í þriðja sæti.

Canon

Mynd: EPA

Lokaumferðin í riðlakeppni HM er að fara af stað og þá er um að gera að rýna aðeins í stöðu mála. Hvaða lið þurfa hvað til að koma sér áfram?

Tvö lið úr hverjum riðli komast áfram ásamt átta liðum með bestan árangur í þriðja sæti.
Hvernig eru lið sem eru jöfn að stigum aðskilin?
Innbyrðis viðureignir gilda þar fyrst á undan markatölu. Þar á eftir koma svo mörk skoruð, prúðmennska og loks staða á FIFA listanum.

Hvaða lið hafa tryggt sér í 32-liða úrslitin?
Argentína, Frakkland, Þýskaland, Mexíkó, Noregur, Bandaríkin og Kólumbía.

Hvaða lið eru úr leik?
Haítí, Jórdanía, Túnis, Tyrkland og Panama.

Hvernig virkar besti árangurinn í þriðja sæti?
Átta lið með besta árangur í þriðja sæti komast í 32-liða úrslit. Þar er farið eftir þessari röð: Stigafjöldi, mörk skoruð, prúðmennska og staða á FIFA listanum. - Ljóst er að fimm stig munu gulltryggja liðum áfram.

Tafla liða sem eru í þriðja sæti núna:
1 Svíþjóð 3 stig (6-6)
2 Skotland 3 stig (1-1)
3 Króatía 3 stig (3-4)
4 Alsír 3 stig (2-4)
5 Paragvæ 3 stig (2-4)
6 Grænhöfðaeyjar 2 stig (2-2)
7 Belgía 2 stig (1-1)
8 Tékkland 1 stig (2-3)
-------------
9 Kongó 1 stig (1-2)
10 Ekvador 1 stig (0-1)
11 Bosnía og Hersegóvína 1 stig (2-5)
12 Senegal 0 stig (3-6)

Staðan í riðlunum:
Skoskur stuðningsmaður með nokkra kalda.

Skoskur stuðningsmaður með nokkra kalda.

Canon

Mynd: EPA

Hvaða lið í þriðja sæti komast áfram?
Canon

Mynd: FIFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.