Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 17. júní 2021 17:31
Victor Pálsson
Naismith leggur skóna á hilluna (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Steven Naismith, fyrrum leikmaður Everton, hefur lagt skóna á hilluna 34 ára gamall.

Þetta var staðfest í gær en Naismith hefur undanfarin þrjú ár leikið með Hearts í Skotlandi.

Fyrir það var leikmaðurinn á mála hjá Norwich eftir fjögurra ára dvöl í Liverpool-borg frá 2012 til 2016.

Naismith lék 103 deildarleiki fyrir Everton á þessum tíma og skoraði í þeim 18 mörk. Hann var áður hjá Rangers.

Naismith hefur ákveðið að samþykkja starf í stjórnarherbergi Hearts og mun því ekki leika með liðinu á næstu leiktíð.

Hann spilaði 21 leik og skoraði sex mörk á síðasta tímabili er Hearts komst aftur upp í efstu deild.
Athugasemdir
banner
banner
banner