Fotbolti.net
17.07.17 - 09:49
Magnús Már Einarsson

ÍBV fær framherja frá Íran (Staðfest)

ÍBV fær framherja frá Íran (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

ÍBV hefur fengið framherjann Shahab Zahedi Tabar til liðs við sig en hann kemur frá Íran.

Shabab er 22 ára gamall en hann getur bæði leikið frammi og á kantinum.
Hann kemur frá Persepolis í úrvalsdeildinni í Íran.

Shabab er kominn með leikheimild með ÍBV og getur því spilað með liðinu í næstu umferð gegn Fjölni.

ÍBV steinlá 6-3 gegn KA í gær en það var kveðjuleikur varnarmannsins Avni Pepa með liðinu. Eyjamenn vonast til að fá nýjan varnarmann í hans stað á næstu dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.