Yves Bissouma er genginn til liðs við Brighton & Hove Albion frá franska liðinu Lille.
Bissouma sem er 21. árs gamall skrifar undir fimm ára samning við félagið og er kaupverðið talið vera um 15 milljónir punda. Leikmaðurinn spilaði 47 leiki fyrir Lille á tíma sínum þar og skoraði 4 mörk. Chris Hughton, knattspyrnustjóri Brighton var ánægður með kaupin.
„Við erum himinlifandi með að hafa gengi frá samningi við Yves og bjóðum honum glaðir velkominn til félagsins. Við höfum viljað bæta við okkur leikmanni á miðsvæðinu og þetta mun bæta úrval okkar á því svæði. Ég hlakka mikið til þess að vinna með honum,” sagði Hughton.
„Hann er með góða tæknilega eiginlega á boltanum og hefur góða reynslu þrátt fyrir ungan aldur eftir að hafa spilað í Frakklandi síðustu tvö tímabil.”
✍️ BREAKING…
— Brighton & Hove Albion ⚽️ (@OfficialBHAFC) July 17, 2018
Brighton & Hove Albion have completed the signing of midfielder Yves Bissouma on a five-year deal! 🇲🇱#BissoumaAnnounced#BHAFC 🔵⚪️
Read ➡️ https://t.co/02LkvRfYGm pic.twitter.com/lsewF9P7ge
Athugasemdir