Gylfi Örn Ámundínusarson Öfjörð er genginn til liðs við Víði í Garði eftir að hafa spilað fjóra leiki fyrir ÍR fyrri hluta sumarsins.
Gylfi er uppalinn Grindvíkingur og kom við sögu í einum leik með Grindavík í Pepsi-deildinni síðasta sumar.
Hann á leiki að baki fyrir Reyni Sandgerði, GG og Njarðvík. Þá lék hann fyrir Víði sumarið 2014 og var mikilvægur hlekkur í byrjunarliðinu.
Gylfi er fæddur 1994 og hefur leikið 53 meistaraflokksleiki á ferlinum. Hann er sterkur varnarmaður og á fjórtán leiki að baki í efstu og næstefstu deild íslenska boltans.
Ljóst er að Gylfi er mikilvæg viðbót við leikmannahóp Víðis þar sem liðið er í fallbaráttu í 2. deildinni, með níu stig eftir ellefu umferðir.
Athugasemdir