Fotbolti.net
17.07.19 - 17:30
Magnús Már Einarsson

David Nugent aftur í Preston (Staðfest)

Nugent sló í gegn hjá Preston á sínum tíma.

Nugent sló í gegn hjá Preston á sínum tíma.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn reyndi David Nugent hefur samið við Preston í Championship deildinni á Englandi.
Nugent er 34 ára gamall en hann sló í gegn hjá Preston á árunum 2005 til 2007 þegar hann skoraði 33 mörk í 94 leikjum.

Nugent var meðal annars valinn í enska landsliðið árið 2007 en sama ár keypti Portsmouth hann á sex milljónir punda.

Síðan þá hefur Nugent spilað með Burnley, Leicester, Middlesbrough og síðast Derby undanfarin tvö tímabil.

Nugent hefur mest leikið í Championship deildinni þó hann eigi einnig nokkra leiki í ensku úrvalsdeildinni á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.