Fotbolti.net
17.07.26 - 13:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sterkust í 11. umferð - FH sótti hana ekki

Helena Errington.

Helena Errington.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helena Errington er sterkasti leikmaður 11. umferðar Bestu deildar kvenna í boði Steypustöðvarinnar. Hún fór hamförum í 6-1 sigri FH gegn Grindavík/Njarðvík í gær.

„Var gífurlega öflug á miðjunni hjá FH," skrifaði Stefán Marteinn Ólafsson í skýrslu sinni frá leiknum.
Sterkasta lið 11. umferðar - Sex liða fallbarátta
TENGT EFNI

Sterkasta lið 11. umferðar - Sex liða fallbarátta

„Hljóp helling og skoraði tvö góð mörk að auki. Fyrsta markið varð kveikjan að þessu öllu og hún skilaði frábæru framlagi í kvöld."

Errington er tvítug og kemur frá Nýja-Sjálandi. Hún er á láni frá Sporting JAX í Bandaríkjunum og hefur verið að spila vel að undanförnu.

Það er athyglisvert hvernig hún kom til landsins en Guðni Eiríksson, þjálfari FH, sagði frá því í hlaðvarpinu Niðurtalningunni hér á Fótbolta.net fyrir tímabilið.

„Það er skemmtilegt að segja frá því að við sækjum hana ekki," sagði Guðni.

„Það er lið í USL-deildinni (í Bandaríkjunum) sem hefur samband við mig og þeir vilja að við þróum hana áfram. Þeir hafa fylgst með og vita hvað við erum að gera í tengslum við unga leikmenn og hvernig við erum að þróa leikmenn. Þeir óska eftir því að við þróum hana áfram. Við erum mjög ánægðir með hana."

„Hún er góð í fótbolta," sagði Katla María Þórðardóttir, fyrirliði FH, í þættinum.
Marki fagnað.

Marki fagnað.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.