17.08.16 - 18:30
Elvar Geir Magnússon
Mahrez gerir nýjan samning við Leicester (Staðfest)

Mahrez fer ekki fet.

Mynd: Getty Images

Mahrez fer ekki fet.

Mynd: Getty Images
Stórar fréttir frá Englandsmeisturum Leicester. Riyad Mahrez hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til 2020.
Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni völdu þennan hæfileikaríka leikmann sem besta leikmann síðasta tímabils. Hann skoraði 17 mörk og lagði upp 11 á síðasta tímabili.
Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni völdu þennan hæfileikaríka leikmann sem besta leikmann síðasta tímabils. Hann skoraði 17 mörk og lagði upp 11 á síðasta tímabili.
Áður höfðu Wes Morgan, Jamie Vardy, Kasper Schmeichel og Andy King allir skrifað undir nýja samninga eftir að Leicester hampaði Englandsmeistaratitlinum.
Mahrez hafði meðal annars verið orðaður við Arsenal en hann hefur leikið gríðarlega vel með Leicester síðan hann var keyptur frá Le Havre 2014.
Leicester tapaði fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili, fyrir Hull á laugardaginn síðasta.

Riyad Mahrez's agents have got him the contract he deserved. Drummed up speculation, particularly in French media, but never huge interest
— Ed Malyon (@eaamalyon) August 17, 2016