Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Dijon í 1-0 tapi gegn Toulouse í annari umferð tímabilsins í Frakklandi.
Jean-Victor Makengo gerði eina mark leiksins á 54. mínútu og hafði Toulouse því betur í nokkuð jöfnum leik.
Dijon er stigalaust eftir tap gegn AS Saint-Etienne í fyrstu umferð á meðan Toulouse er komið með fjögur stig.
Toulouse 1 - 0 Dijon
1-0 Jean-Victor Makenga ('54)
Liðin undir íslenskri stjórn í belgísku B-deildinni töpuðu þá bæði leikjum sínum í dag.
Lærisveinar Arnars Grétarssonar hjá Roeselare töpuðu 4-1 fyrir Westerlo og eru með eitt stig eftir þrjár umferðir.
Lærisveinar Stefáns Gíslasonar í Lommel töpuðu 0-3 fyrir Virton og eru ekki búnir að skora mark í fyrstu þremur umferðunum.
Kolbeinn Þórðarson var ekki með vegna minniháttar meiðsla.
Lommel 0 - 3 Virton
Westerlo 4 - 1 Roeselare
Athugasemdir