Jóhann Birnir: Lífsnauðsynlegt fyrir okkur

Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ótrúlega ánægður með andann og menn lögðu allt í þetta,“ sagði Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR, eftir 3-1 sigur gegn Njarðvík í Breiðholtinu í dag.
Það mætti segja að leikurinn hafi unnist í grunngildunum en baráttan sem ÍR sýndi í dag sótti sigurinn. Sýndu þeir í dag að þegar grunngildin eru í lagi að þá fylgir hitt?
„Já, það er yfirleitt þannig í fótbolta. Við höfum alveg gæðin til að gera eitthvað en ef að við erum ekki on, eins og þú segir, í grunngildunum þá getur farið illa en þetta var bara frábært í kvöld.“
Það leit út fyrir á köflum að leikurinn yrði einhver vitleysa en báðir bekkir virtust voru ósáttir með Gunnar Odd, dómara leiksins:
„Hann stóð sig bara fínt. Þetta var svo sem ekkert grófur leikur, bara menn voru að leggja allt í þetta og þetta var bara heiðarlega spilaður leikur af báðum liðum en við náðum að klára þetta í kvöld og það var náttúrulega lífsnauðsynlegt fyrir okkur.“
Framundan eru þrír úrslitaleikir hjá ÍR um að halda sæti sínu í deildinni en þeir horfa væntanlega bara á einn leik í einu eða hvað?
„Já, maður spilar bara einn leik í einu, það er bara þannig.“
Viðtalið við Jóhann má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
