Fotbolti.net
17.08.26 - 22:10
Helgi Inguson

Jakob Snær: Þetta lið á heima miklu ofar í töflunni

Auglýsing
Jakob Snær skoraði tvö mörk í kvöld

Jakob Snær skoraði tvö mörk í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fótbolti.net ræddi við Jakob Snæ Árnason, leikmann KA, sem var á skotskónum í 4-4 jafntefli liðsins gegn Val á N1-vellinum í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 4 - 4 KA
„Ég er svekktur núna, en eftir á að hyggja verðum við að þiggja stigið þar sem þau hafa ekki verið jafn mörg og við viljum. Miðað við hvernig leikurinn endaði vorum við kannski heppnir að taka stigið en við hefðum átt að klára leikinn fyrr," sagði Jakob Snær.

Jakob skoraði tvö mörk í dag en hann hefði þó frekar þegið stigin þrjú.

„Það er gaman þegar mörkin detta en ég hefði frekar tekið þrjú stig. En það er gott að geta aðstoðað liðið og það er það sem maður er að leggja að sér. Nú þarf að leggja enn harðar að sér að koma okkur úr þessari stöðu sem við erum komnir í og komast í betri mál. Þetta lið á heima miklu ofar í töflunni."

Gengi KA hefur verið slakt í sumar, liðið situr í fallsæti, þvert gegn spánni fyrir mót. KA hefur nú einungis unnið einn leik af síðustu 12, hefur þetta verið erfitt?

„Ég held að mórallinn í liðinu sé óvenju góður. Við erum lið af landsbyggðinni og erum mjög þéttir og náinn hópur. Við finnum ekki fyrir því að liðið sé að splundrast og að við vinnum gegn hvor öðrum sem er gott. Ef við höldum áfram að standa saman og leggjum aðeins harðar að okkur þá er ég fullviss um að við snúum þessu við," sagði Jakob Snær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.