Fotbolti.net
17.08.26 - 19:06
Ívan Guðjón Baldursson

Todibo og Füllkrug á leið til heimalandanna

Todibo og Füllkrug á leið til heimalandanna
Canon

Mynd: EPA

Það eru miklar breytingar að eiga sér stað innan herbúða West Ham United eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni.
Félagið er að ganga frá kaupum á nýjum leikmönnum en þarf einnig að selja leikmenn. Miðvörðurinn Jean-Clair Todibo er á leið burt og var ekki í hóp í fyrstu leikjum nýs tímabils.

Franska félagið Marseille hefur áhuga á varnarmanninum sem er 26 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi. Marseille vill fá Todibo á lánssamningi og eru Hamrarnir tilbúnir að gefa grænt ljós til að lækka launakostnaðinn sinn.

Werder Bremen er þá að reyna að krækja í framherjann Niclas Füllkrug sem stóðst ekki væntingarnar sem gerðar voru til hans í London.

Füllkrug er 33 ára gamall og með tvö ár eftir af samningi. Hann kostaði West Ham tæpar 30 milljónir punda sumarið 2024 en Bremen vill fá hann á láni með kaupmöguleika sem hljóðar upp á 5 milljónir punda.

Sky í Þýskalandi segir að Fullkrug hafi fengið leyfi til að fljúga til Bremen fyrir læknisskoðun. Hann hóf ferilinn hjá Werder Bremen og gæti endað hann á sama stað.

Todibo og Füllkrug eru báðir sagðir vera tilbúnir að lækka launakröfur sínar til að komast burt á lánssamningum.
Todibo og Füllkrug á leið til heimalandanna
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.