Fotbolti.net
17.08.26 - 19:40
Ívan Guðjón Baldursson

Batshuayi til Sádi-Arabíu (Staðfest)

Batshuayi til Sádi-Arabíu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Belgíski framherjinn Michy Batshuayi er búinn að skipta yfir til Abha Club á frjálsri sölu.
Batshuayi, sem verður 33 ára í október, kemur til félagsins úr röðum Eintracht Frankfurt.

Abha eru nýliðar í efstu deild í Sádi-Arabíu eftir að hafa unnið næstefstu deild á síðustu leiktíð.

Batshuayi hefur komið víða við á ferlinum og reynir fyrir sér í fyrsta sinn í Sádi-Arabíu eftir að hafa spilað fyrir þrjú stærstu lið tyrkneska boltans á síðustu fimm árum. Þar áður kom Batshuayi meðal annars við hjá Chelsea, Borussia Dortmund og Valencia og skoraði hann 27 mörk í 55 landsleikjum með Belgíu.

Abha Club krækti einnig í Nabil Fekir, fyrrum leikmann Lyon, Real Betis og franska landsliðsins, á dögunum og verður fróðlegt að fylgjast með nýliðunum í vetur.

Batshuayi til Sádi-Arabíu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.