Fotbolti.net
17.08.26 - 10:52
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Leikmaður Cagliari á gjörgæslu eftir að hafa misst meðvitund í sundlaug

Yael Trepy, til vinstri.

Yael Trepy, til vinstri.

Canon

Mynd: EPA

Yael Trepy, 20 ára gamall sóknarmaður ítalska félagsins Cagliari, er á gjörgæslu eftir að hann missti meðvitund í sundlaug á eynni Sardiníu. Hann var fluttur á sjúkrahús með þyrlu í gær.

„Félagið er í stöðugu sambandi við lækna og fjölskyldu leikmannsins og fylgist náið með framvindu ástands hans. Á þessum tímapunkti eru hugsanir Cagliari Calcio hjá Yael og fjölskyldu hans. Félagið biður einnig um að friðhelgi þeirra sé virt," segir í tilkynningu frá Cagliari.
Leikmenn Cagliari fengu frí um helgina eftir að þeir unnu Arezzo 1-0 í ítalska bikarnum á föstudag. Trepy lék 54 mínútur í leiknum.

Hann skoraði eitt mark í átta leikjum í ítölsku A-deildinni á síðasta tímabili en hann kom upp úr unglingastarfi félagsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.