Fotbolti.net
17.09.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Reguilon í læknisskoðun hjá Tottenham - Bale færist nær

Sergio Reguilon.

Sergio Reguilon.

Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Reguilon, vinstri bakvörður Real Madrid, er þessa stundina í læknisskoðun hjá Tottenham.

Tottenham er að kaupa Reguilon á 25 milljónir punda. Reguion var í láni hjá Sevilla á síðasta tímabili og þá var hann valinn besti vinstri bakvörðurinn í spænsku úrvalsdeildinni.

Reguilon er í læknisskoðun í Madrid en hann flýgur síðan til London til að skrifa undir.

Gareth Bale er einnig á leið til Tottenham á nýjan leik á láni frá Real Madrid.
Bale er staddur á æfingasvæði Real Madrid en hann bíður eftir grænu ljósi til að fara í læknisskoðun í Madrid og fljúga í kjölfarið til London til að skrifa undir líkt og Reguilon.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.