Fotbolti.net
17.10.16 - 19:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

Hákon Ingi aftur í Fylki (Staðfest)

Hákon Ingi Jónsson

Hákon Ingi Jónsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hákon Ingi Jónsson hefur gengið til liðs við Fylki en hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
Framherjinn er uppalinn Fylkismaður en hann spilaði með HK í eitt ár, þar skoraði hann 13 mörk í 22 leikjum í 1. deildinni og var með betri mönnum deildarinnar.

Hákon er fæddur árið 1995 en hann á alls 31 leik fyrir Fylki þar sem hann hefur skorað eitt mark.

Framherjinn er fyrsti leikmaðurinn sem Fylkir fær til sín síðan Helgi Sigurðsson tók við liðinu í síðustu viku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.