17.10.16 - 09:11
Elvar Geir Magnússon
Kristófer Sigurgeirs nýr þjálfari Leiknis (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristófer Sigurgeirsson er nýr þjálfari Leiknis í Breiðholti en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Kristófer hefur starfað undanfarin tvö ár sem aðstoðarþjálfari Breiðabliks. Hann var að auki yfirþjálfari Kópavogsfélagsins á síðustu leiktíð. Kristófer hefur áður starfað við þjálfun hjá Fjölni, HK og Reyni Sandgerði.
Kristófer lék á sínum tíma tvo leiki fyrir Íslenska landsliðið árið 1994.
„Leiknismenn hlakka til samstarfsins og vænta mikils af störfum Kristófers sem þjálfara Leiknis á komandi misserum. Við bjóðum Kristófer virkilega velkomin í Leikni og Efra-Breiðholtið,\" segir á heimasíðu Leiknis.
Leiknismenn féllu úr Pepsi-deildinni í fyrra. Þeir enduðu í sumar í 7. sæti Inkasso-deildarinnar, undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar sem um helgina var kynntur sem nýr þjálfari ÍBV.