Fotbolti.net
17.10.16 - 16:06
Elvar Geir Magnússon

Óttar Bjarni í Stjörnuna (Staðfest)

Óttar Bjarni í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðvörðurinn Óttar Bjarni Guðmundsson hefur samið við Stjörnuna í Garðabæ en hann hefur allan sinn feril leikið fyrir Leikni í Breiðholti.

Samningur Óttars við Stjörnuna er til þriggja ára.
Óttar var valinn leikmaður ársins hjá Leikni en þetta er annað árið í röð sem Stjarnan sækir leikmann ársins hjá Breiðholtsfélaginu. Hilmar Árni Halldórsson gekk í raðir Stjörnunnar fyrir ári síðan.

Óttar er 26 ára gamall og hefur verið lykilmaður hjá Leikni, spilað 157 leiki í deild og bikar og skorað átta mörk.

Stjarnan hafnaði í öðru sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en eftir tímabilið var tilkynnt að Grétar Sigfinnur Sigurðarson væri hættur hjá félaginu. Óttar er fenginn í hans stað.

Stjarnan hefur samið við miðvörðinn knáa Óttar Bjarna Guðmundsson til 3 ára en hann kemur frá Leikni R
Óttar vertu velkominn! #InnMedBoltann pic.twitter.com/0Uo9VYl1IY

-- Stjarnan FC (@FCStjarnan) October 17, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.