Fotbolti.net
17.10.17 - 14:25
Elvar Geir Magnússon

Leicester búið að reka Shakespeare (Staðfest)

Craig Shakespeare stýrði Leicester í 26 leikjum áður en hann var rekinn.

Craig Shakespeare stýrði Leicester í 26 leikjum áður en hann var rekinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Craig Shakespeare hefur verið rekinn frá Leicester. Þessi 53 ára stjóri var ráðinn stjóri Leicester til frambúðar í júní en eftir slaka byrjun á tímabilinu hefur hann verið látinn taka pokann sinn.
Shakespeare var kallaður á fund með stjórn félagsins í dag og þar var honum tjáð að ákveðið hafi verið að reka hann. Liðið hefur aðeins unnið einn af tíu úrvalsdeildarleikjum og er í 18. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Leicester gerði 1-1 jafntefli við West Brom í gærkvöldi.

Leicester varð óvænt Englandsmeistari í fyrra undir stjórn Claudio Ranieri. Ítalinn var svo rekinn á síðasta tímabili og Shakespeare, sem hafði verið aðstoðarmaður hans, tók við. Fyrst til bráðabirgða.

Ekki er ljóst hver mun taka við stjórastarfinu á King Power.

Craig Shakespeare sacked by Leicester. Bring back Claudio.

— Gary Lineker (@GaryLineker) October 17, 2017

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.