Lorenzo Insigne, leikmaður Napoli og ítalska landsliðsins, mætti fyrr á æfingasvæði félagsins eftir landsleikjatörnina til þess að ræða við Carlo Ancelotti, þjálfara liðsins.
Insigne og Ancelotti virðast ekki eiga skap saman og viðurkenndi Insigne það á dögunum.
Leikmaðurinn var ekki í leikmannahópnum hjá Napoli í 0-0 jafntefli gegn Genk í Meistaradeildinni.
Insigne var þó ákveðinn í að vilja hreinsa loftið og mætti hann með Mino Raiola, umboðsmanni sínum, á æfingasvæði Napoli í dag til að ræða við Ancelotti.
Insigne er uppalinn hjá félaginu og þar að auki fyrirliði félagsins.
Athugasemdir