James Maddison, miðjumaður Leicester, verður á sínum stað í liðinu gegn Burnley á laugardaginn.
Athygli vakti þegar Maddison dró sig úr enska landsliðshópnum í síðustu viku vegna veikinda en í kjölfarið sást til hans á spilavíti í Leicester.
Brendan Rodgers, stjóri Leicester, segir að Maddison verði klár í slaginn um helgina.

„Hann er í lagi. Hann fékk högg fyrir Liverpool leikinn og síðan var hann veikur þegar hann var í burtu (með landsliðinu)," sagði Rodgers í dag.
„Hann æfði í nokkra daga í þessari viku og hann var í lagi þar."
Athugasemdir