Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 17. október 2019 17:30
Magnús Már Einarsson
Viktor Örn framlengir við ÍR (Staðfest)
Viktor Örn (til hægri) fagnar marki með ÍR í sumar.
Viktor Örn (til hægri) fagnar marki með ÍR í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viktor Örn Guðmundsson hefur gengið frá nýjum tveggja ára samning við ÍR í 2. deildinni.

„Miðjumaðurinn Viktor Örn Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við ÍR. Hann verður því áfram mikilvægur hlekkur í liðinu á næstu misserum," segir á Facebook síðu ÍR.

Viktor Örn er uppalinn hjá FH en hann hefur leikið með ÍR síðan árið 2017.

Í sumar skoraði Viktor þrjú mörk í sjö leikjum í 2. deildinni með ÍR en hann var að snúa aftur eftir að hafa misst af öllu tímabilinu í fyrra vegna meiðsla á hné.

Hinn 29 ára gamli Viktor hefur samtals skorað 33 mörk í 154 deildarleikjum á ferlinum en hann hefur spilað í þremur efstu deildunum.

Auk ÍR og FH hefur Viktor spilað með Fjarðabyggð, KA, Fylki, KV og Víkingi R.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner