Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. október 2020 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Neymar verður klár fyrir leikinn gegn Man Utd
Neymar í leik með PSG
Neymar í leik með PSG
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, þjálfari Paris Saint-Germain, segir að brasilíski sóknarmaðurinn Neymar verði klár í leikinn gegn Manchester United í Meistaradeildinni á þriðjudaginn.

Neymar var ekki með í 4-0 sigri Paris Saint-Germain á Nimes í frönsku deildinni í gær en hann var hvíldur eftir langt ferðalag frá Perú.

Hann verður hins vegar klár í að mæta Manchester United í fyrstu umferð í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

„Það er ekkert að Neymar. Við ræddum saman alveg eins og ég gerði með Kylian Mbappe. Við áttum heiðarlegar samræður og ég ákvað að hvíla hann. Neymar verður með okkur á morgun, mun æfa og gera sig kláran fyrir leikinn gegn Manchester United," sagði Tuchel.
Athugasemdir
banner
banner
banner