Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. október 2020 22:30
Victor Pálsson
Simeone óskar Partey góðs gengis - „Magnaður leikmaður
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid, hefur tjáð sig um brottför miðjumannsins Thomas Partey sem er genginn í raðir Arsenal.

Simeone vann með Partey í dágóðan tíma hjá Atletico en hann var keyptur til enska félagsins fyrir 45 milljónir punda í sumar.

Margir búast við miklu af Partey á miðju Arsenal og eru stuðningsmenn vongóðir eftir hans komu.

„Ég man eftir Thomas síðan hann spilaði með B liði Atletico Madrid ásamt Saul Niguez," sagði Simeone.

„Við byrjuðum að nota hann í aðalliðinu og það tók á. Hann fór til Almeria og þar var hann í erfiðleikum með að finna stöðugleika."

„Í dag er hann magnaður leikmaður og við óskum honum alls hins besta."

Athugasemdir
banner
banner