Demba Ba sagði frá því á dögunum að hann hafi verið læstur í skotti á bíl til að halda félagskiptum til West Ham árið 2011 leyndu frá blaðamönnum.
Framherjinn gekk til liðs við West Ham frá Hoffenheim árið 2011 en liðið var þá í mikilli fallbaráttu.
Honum var sagt að fá félaga sinn til að smygla honum inná æfingasvæði félagsins til að blaðamenn myndu ekki sjá hann mæta á svæðið. Hann sagði frá þessu skrautlega atviki á dögunum.
„Þetta var ekki stærsta skott í heimi, ég skallaði hvert einasta horn," sagði Ba.
Hann skoraði sjö mörk í tólf leikjum en þrátt fyrir það mistókst liðinu að halda sér uppi, endaði í neðsta sæti deildarinnar.
„Það var góð stemning í klefanum en á endanum höfðum við ekki gæðin til að halda okkur uppi," sagði Ba að lokum.
Athugasemdir