Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 17. október 2021 22:31
Victor Pálsson
Þýskaland: Alfreð kom við sögu í jafntefli
Mynd: Getty Images
Augsburg 1 - 1 Arminia Bielefeld
1-0 Reece Oxford ('19 )
1-1 Jacob Laursen ('77 )

Alfreð Finnbogason kom við sögu hjá Augsburg í kvöld sem spilaði við Arminia Bielefeld í þýsku úrvalsdeildinni.

Alfreð hefur verið töluvert meiddur undanfarna mánuði og hefur lítið náð að spila með sínu félagsliði sem og landsliði.

Alfreð var að spila sinn fyrsta leik síðan í ágúst en hann kom við sögu í sex mínútur í leik sem lauk með 1-1 jafntefli.

Reece Oxford skoraði eina mark Augsburg í þessum leik en hann er fyrrum leikmaður West Ham.

Augsburg er í fallbaráttu eftir átta umferðir en liðið hefur aðeins unnið einn leik til þessa og gert þrjú jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner
banner