Fotbolti.net
17.11.12 - 13:52
Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Kale í Víking (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag. Ólafur Þórðarson, Ingvar Kale, Andri Steinn Birgisson og Heimir Gunnlaugsson varaformaður.

Frá undirskriftinni í dag. Ólafur Þórðarson, Ingvar Kale, Andri Steinn Birgisson og Heimir Gunnlaugsson varaformaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingvar Þór Kale er genginn til liðs við Víking frá Breiðablik en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í Víkinni í hádeginu í dag.

Við sama tilefni skrifaði Andri Steinn Birgisson undir samning við félagið til tveggja ára en áður var búið að staðfesta komu hans til Víkings frá Leikni.
Ingvar Kale er uppalinn í Víkingi þar sem hann spilaði öll sín ár þar til hann gekk til liðs við Breiðablik árið 2009. Hann var í Breiðablik undanfarin fjögur ár og varð þar bæði Íslands og bikarmeistari.

Þegar Breiðablik fékk Gunnleif Gunnleifsson landsliðsmarkvörð frá FH í síðasta mánuði varð ljóst að Ingvar færi frá félaginu.

Hann er 29 ára gamall og snýr nú aftur til uppeldisfélagsins þar sem hann spilaði fyrst í meistaraflokki árið 2002. Hann á að baki 188 leiki í deild og bikar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.