17.11.16 - 22:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Jóhann Þórhallsson í Magna (Staðfest)

Jóhann Þórhallsson skrifar undir hjá Magna.

Mynd: Magni

Framherjinn Jóhann Þórhallsson hefur gengið til liðs við Magna í Grenivík.
Magni ætlar sér stóra hluti í 2. deild á næsta ári og verður Jóhann nú partur af því verkefni.
Jóhann hefur skorað grimmt með Völsungi undanfarin tvö ár en mörkin hans var stór partur af því að þeir komust upp úr 3. deild árið 2015. Jóhann hélt svo áfram í 2. deildinni í sumar og skoraði hann 14 mörk í 19 leikjum í deildinni.
Hann hefur komið víða við á ferlinum og spilað með Þór, KA, KR, Grindavík og Fylki auk Völsungi. Jóhann hefur alls skorað 136 mörk í 302 leikjum hér á landi.