17.11.16 - 14:30
Ívan Guðjón Baldursson
Kayla Grimsley spilandi þjálfari Völsungs (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kayla June Grimsley hefur verið ráðin sem spilandi þjálfari kvennaliðs Völsunga og mun hún sjá að stórum hluta um áframhaldandi uppbyggingu kvennastarfsins í Húsavík.
Kayla lék með Þór/KA í þrjú ár og var meðal bestu leikmanna Pepsi-deildar kvenna, en þetta er hennar fyrsta starf sem aðalþjálfari meistaraflokks.

„Illa gekk að manna meistaraflokk kvenna hjá Völsungi á síðasta ári enda ákveðin kynslóðaskipti í gangi og eldri og reyndari leikmenn horfnir á braut,\" stendur í frétt á vefsíðu Völsungs.
„Árangur liðsins var eftir því. Efnilegar stelpur eru á leiðinni upp og því virðist um tímabundið ástand að ræða. Ákveðið var að blása til sóknar eins og þessi metnaðarfulla ráðning sýnir.\"
Kristina Corona var einnig ráðin til félagsins sem aðstoðarþjálfari og verður kvennadeild Völsungs því undir stjórn bandarískra þjálfara næstu misseri.