Fotbolti.net
17.11.17 - 20:55
Helgi Fannar Sigurðsson

Coleman hættir með Wales til að taka við Sunderland (Staðfest)

Chris Coleman.

Chris Coleman.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Chris Coleman hefur ákveðið að hætta með Wales til að taka við Sunderland. Sky Sports greinir frá þessu.

Coleman mætir til starfa á sunnudaginn og mun stýra sínum fyrsta leik með Sunderland á þriðjudag gegn Aston Villa.

Coleman á að hafa fundað með knattspyrnusambandi Wales á síðustu 24 klukkustundum. Honum mistókst að koma liðinu á HM í Rússlandi næsta sumar.
Coleman stýrði Wales í fimm ár, hann kom liðinu meðal annars alla leið í undanúrslit á EM í Frakklandi í fyrra.

Sunderland ræddi líka við Michael O\'Neill, stjóra Norður-Íra sem og Paul Heckingbottom, stjóra Barnsley um að taka við starfinu.

O\'Neill er ekki talinn hafa haft áhuga á starfinu og Sunderland hætti við Heckingbottom.

Sunderland er á botni ensku Championship-deildarinnar og er nýja starfið hans Coleman því verðugt verkefni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.