Fotbolti.net
17.11.17 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Dean Martin aðstoðar Sigga Ragga líka (Staðfest)

Dean Martin og Sigurður Ragnar fagna marki með ÍBV sumarið 2014.

Dean Martin og Sigurður Ragnar fagna marki með ÍBV sumarið 2014.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kínverska kvennalandsliðsins. Dean og Halldór Björnsson verða saman aðstoðarþjálfarar hjá Sigurði Ragnari Eyjólfssyni sem tók við Kína í síðustu viku.
Dean hefur verið þjálfari hjá KSÍ síðan í byrjun árs en hann hefur unnið í hæfileikamótun hjá sambandinu.

Hann fer nú til Kína þar sem hann starfar með Sigurði Ragnari. Dean var aðstoðarþjálfari Sigurðar hjá ÍBV sumarið 2014 og þeir þekkjast vel.

„Þetta var mjög erfið ákvörðun. Ég er búinn að vera mjög ánægður í þessari stöðu hjá KSÍ. Þetta var frábært tækifæri og skemmtileg staða,\" sagði Dean Martin í viðtali í Akraborginni á X-inu í gær.

„Þetta var erfitt val fyrir mig en þetta er stærsta þjóð í heimi og þetta er tækifæri sem kemur ekki aftur. Ég myndi alltaf sjá eftir því ef ég hefði ekki tekið það,\" sagði Dean um nýja starfið.

Sjá einnig:
Halldór verður Sigga Ragga til aðstoðar í Kína (Staðfest)

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.