17.12.12 - 19:00
Elvar Geir Magnússon
Delio Rossi nýr þjálfari Sampdoria (Staðfest)
Giuseppe Iachini tekinn við Siena

Delio Rossi er tekinn við Sampdoria.

Mynd: Getty Images

Delio Rossi er tekinn við Sampdoria.

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Sampdoria ákvað að reka Ciro Ferrara úr þjálfarastólnum og er Delio Rossi tekinn við liðinu. Ferrara hefur stýrt Sampdoria síðan í sumar en liðið tapaði fyrir Catania um helgina.
Rossi var rekinn frá Fiorentina á síðasta tímabili eftir að hafa lent í slagsmálum við leikmanninn Adem Ljajic.
Einnig hefur Sampdoria skipt um yfirmann íþróttamála, Pasquale Sensibile yfirgaf félagið og Carlo Osti tók við hans stöðu.
Sampdoria er í 14. sæti deildarinnar, þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Liðið hóf tímabilið með eitt stig í mínus. Fyrsti leikur liðsins undir stjórn Rossi verður heimaleikur gegn Lazio um næstu helgi.
Sampdoria er ekki eina liðið sem rak þjálfara sinn eftir helgina. Botnlið Siena hefur staðfest ráðningu á Giuseppe Iachini sem tekur við af Serse Cosmi.