Fotbolti.net
17.12.12 - 18:30
Magnús Már Einarsson

Juninho til New York Red Bulls (Staðfest)

Juninho til New York Red Bulls (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski miðjumaðurinn Juninho hefur gengið til liðs við New York Red Bulls í Bandaríkjunum. Juninho kemur til New York Red Bulls frá Vasco da Gama í heimalandi sínu.
Áður var Juninho á mála hjá franska félaginu Lyon í átta ár og síðar hjá Al-Gharafa í Katar.

Miðjumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson er á mála hjá New York Red Bulls en hann er í láni hjá NEC Nijmegen í augnablikinu.

Juninho styrkir miðjuna hjá New York Red Bulls mikið en fyrir hjá liðinu er einnig Tim Cahill fyrrum leikmaður Everton.

Juninho er mikill akaspyrnusérfræðingur eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Heimild: Heimasíða New York Red Bulls

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.