Fotbolti.net
17.12.12 - 21:21
Ívan Guðjón Baldursson

Roger Espinoza til Wigan (Staðfest)

Roger Espinoza er kominn til Wigan.

Roger Espinoza er kominn til Wigan.

Canon

Mynd: Getty Images

Roger Espinoza, 26 ára gamall leikmaður frá Hondúras, er búinn að fá atvinnuleyfi og getur því spilað fyrir Wigan Athletic frá og með 1. janúar 2013.

Espinoza spilaði fyrir landslið Hondúras á Ólympíuleikunum í Lundúnum 2012 og skoraði meðal annars mark í 3-2 tapi gegn Brasilíu í átta liða úrslitum, en hann lék einnig fyrir Hondúras á HM 2010 í Suður-Afríku.
Espinoza er sem sagt samlandi Maynor Figueroa sem er byrjunarliðsmaður hjá Wigan, en Espinoza getur bæði spilað sem varnarmaður og miðjumaður.

,,Málflutningur okkar til að fá atvinnuleyfi fyrir Roger var mjög sterkur og það eru góðar fréttir fyrir okkur að hann geti flutt til Englands og starfað hér,\" sagði Roberto Martinez, knattspyrnustjóri Wigan, í viðtali við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Það er draumur fyrir mig að spila á Englandi og ég er mjög þakklátur félaginu sem lagði mikið á sig til að fá mig til landsins,\" sagði Espinoza, sem kemur til Wigan á frírri sölu frá Sporting Kansas City í Bandaríkjunum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.