Fotbolti.net
17.12.16 - 12:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Gunnlaugur Fannar í Víking R. (Staðfest)

Gunnlaugur Fannar ásamt Milos Milojevic. þjálfara Víkinga

Gunnlaugur Fannar ásamt Milos Milojevic. þjálfara Víkinga

Canon

Mynd: Víkingur R.

Víkingur R. heldur áfram að styrkja sig, en nú var liðið að ganga frá samningum við varnarmanninn Gunnlaug Fannar Guðmundsson sem kemur til liðsins frá Haukum.

Gunnlaugur hefur spilað með meistaraflokki Hauka frá árinu 2011 og spilað 100 leiki fyrir félagið. Gunnlaugur spilar í stöðu miðvarðar og hefur verið mikilvægur hlekkur í liði Hauka undanfarin ár, en hefur nú ákveðið að reyna fyrir sér í Pepsi-deildinni.
Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráð Víkings, segir félagið binda miklar vonir við Gunnlaug fyrir átökin í Pepsi-deildinni næsta sumar.

„Við í Víkingi höfum haft augastað á Gunnlaugi frá því síðastliðið sumar og töldum hann geta styrkt leikmannahópinn okkar. Hann hefur verið að æfa hjá okkur nú á haustmánuðum og virðist hafa allt sem þarf til þess að geta náð árangri í efstu deild,\" sagði Heimir í fréttatilkynningu frá Víkingum.

Jón Erlendsson, formaður meistaraflokksráðs Hauka, þakkar Gunnlaugi fyrir gott samstarf undanfarin ár.

„Gulli hefur verið góður liðsmaður Hauka og félagi undanfarin ár og við óskum honum að sjálfsögðu alls hins besta í Pepsi-deildinni næsta sumar og vitum að hann á eftir að standa sig vel,\" sagði Jón.

Víkingur R. lenti í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar á síðasta tímabili, en þeir ætla sér stærri hluti á því næsta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.