Fotbolti.net
17.12.16 - 13:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sveinn Óli og Fannar Freyr í Magna (Staðfest)

Sveinn Óli er kominn aftur í Magna

Sveinn Óli er kominn aftur í Magna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Magni frá Grenivík hefur samið við tvo leikmenn fyrir átökin í 2. deild karla næsta sumar. Þetta eru þeir Sveinn Óli Birgisson og Fannar Freyr Gíslason.

Sveinn Óli kemur frá Bergsøy IL í Noregi, en hann lék áður með Magna og er því kominn á slóðir sem hann þekkir vel.
Sveinn Óli er uppalinn hjá Þór á Akureyri en hefur einnig leikið með Dalvík/Reyni auk þess að leika með Magna áður. Hann lék lykilhlutverk í vörn Magna er liðið vann 3. deildina sumarið 2015.

Hann gerði eins árs samning við Magna og mun því leika með liðinu næsta sumar.

Þeir hjá Magna eru greinilega önnum kafnir, en þeir sömdu einnig við Fannar Frey Gíslason um að leika með liðinu næsta sumar.

Fannar Freyr kemur frá HK, en hann var í láni hjá Magna á síðari hluta síðasta tímabils. Hann lék þá sex leiki og skoraði tvö mörk.

Magni endaði í fimmta sæti 2. deildar karla á síðasta leiktímabili, en markið er greinilega sett hærra fyrir næsta sumar.
Fannar Freyr Gíslason

Fannar Freyr Gíslason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.