Fotbolti.net
17.12.19 - 22:42
Ívan Guðjón Baldursson

Dean Smith og Terry fóru beint inn í klefa hjá liverpool

Neil Critchley var ánægður með John Terry og Dean Smith að leikslokum.

Neil Critchley var ánægður með John Terry og Dean Smith að leikslokum.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa lagði Liverpool að velli í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins fyrr í kvöld.
Liverpool tefldi fram kornungu liði þar sem meðalaldurinn var undir 20 ára. Aðalliðið er í Katar að undirbúa sig fyrir undanúrslitaleik HM félagsliða sem fer fram annað kvöld.

Aston Villa vann leikinn 5-0 en ungir leikmenn Liverpool stóðu sig vel og voru afar óheppnir að tapa með svo miklum mun.

Dean Smith, knattspyrnustjóri Aston Villa, og aðstoðarmaður hans John Terry fóru beint inn í klefa til leikmanna Liverpool að leikslokum.

„Leikmenn Villa hegðuðu sér mjög fagmannlega. Það var stórkostlegt að fá Dean Smith og John Terry inn í klefa eftir leikinn. Þeir hvöttu strákana áfram og óskuðu okkur alls hins besta. Það er stund sem hvorki ég né leikmennirnir munum aldrei gleyma," sagði Neil Critchley, þjálfari U23 liðs Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.